Teikning listamanns af Gliese 667C kerfinu
Í þessu myndskeiði sést ímyndað útsýni frá fjarreikistjörnunni Gliese 667Cd yfir á móðurstjörnuna (Gliese 667C). Fyrir aftan glittir í fjarlægari stjörnur þessa þrístirnakerfis (Gliese 667A og Gliese 667B) en vinstra megin við móðurstjörnuna sést ein af hinum reikistjörnunum, Gliese 667Ce, sem sigð. Þrjár reikistjarnanna í þessu kerfi eru svonefndar risajarðir á því svæði í sólkerfinu þar sem vatn gæti verið á fljótandi formi og því gætu þær mögulega verið lífvænlegar. Þetta er fyrsta sólkerfið sem finnst með fullskipuðu lífbelti.
Mynd/Myndskeið:ESO/M. Kornmesser
Um myndskeiðið
Auðkenni: | eso1328b |
Tungumál: | is |
Útgáfudagur: | Jún 25, 2013, 12:00 CEST |
Tengdar fréttatilkynningar: | eso1328 |
Tímalengd: | 25 s |
Frame rate: | 30 fps |
Um fyrirbærið
Nafn: | Gliese 667C |