Skimað yfir höfuð Mávaþokunnar
Í þessu myndskeiði sjáum við nærmynd af nýrri ljósmynd frá La Silla stjörnustöð ESO af stjörnumyndunarsvæði sem kallast Mávaþokan. Þetta gasský, sem einnig er þekkt sem Sh 2-292, RCW 2 og Gum 1, virðist mynda höfuð mávs og skín skært fyrir tilverknað orkuríkrar geislunar frá mjög heitri, ungri stjörnu sem lúrir í henni. Myndin var tekin með Wide Field Imager á 2,2 metra MPG/ESO sjónaukanum.
Mynd/Myndskeið:ESO. Music: Disasterpeace
Um myndskeiðið
Auðkenni: | eso1237b |
Tungumál: | is |
Útgáfudagur: | Sep 26, 2012, 12:00 CEST |
Tengdar fréttatilkynningar: | eso1237 |
Tímalengd: | 01 m 01 s |
Frame rate: | 30 fps |