Teikning af útsýninu innan úr hringum Charikl
Athuganir sem gerðar voru frá ýmsum stöðum í Suður Ameríku, þar á meðal La Silla stjörnustöð ESO, hafa óvænt leitt í ljós að fjarlægt smástirni, Chariklo, hefur tvo þétta og mjóa hringa. Smástirnið er fimmta og langminnsta fyrirbærið í sólkerfinu — á eftir risareikistjörnunum Júpíter, Satúrnusi, Úranusi og Neptúnusi — sem hefur hringakerfi. Uppruni hringana er hulin ráðgáta en má hugsanlega rekja til árekstra sem mynduðu rykskífu í kringum smástirnið.
Þessi teikning sýnir hvernig hringarnir gætu litið út í návígi, með Chariklo í bakgrunni og smalatungl í hringunum.
Mynd/Myndskeið:ESO/L. Calçada/M. Kornmesser/Nick Risinger (skysurvey.org)