1 00:00:02,080 --> 00:00:06,000 Í leit að lífi 2 00:00:08,500 --> 00:00:11,470 Hefur þú einhvern tímann velt fyrir þér lífi í alheiminum? 3 00:00:11,470 --> 00:00:14,600 Lífvænlegar reikistjörnur á braut um fjarlægar sólir? 4 00:00:14,600 --> 00:00:17,500 Það hafa stjörnufræðingar gert — um aldir. 5 00:00:17,500 --> 00:00:21,950 Í geimnum eru jú ótrúlega margar vetrarbrautir og aragrúi stjarna 6 00:00:21,950 --> 00:00:24,140 svo hvers vegna ætti jörðin að vera einstök? 7 00:00:25,500 --> 00:00:30,110 Árið 1995 urðu svissnesku stjörnufræðingarnir Michel Mayor og Didier Queloz 8 00:00:30,110 --> 00:00:34,660 fyrstir til að uppgötva fjarreikistjörnu á braut um venjulega stjörnu. 9 00:00:35,000 --> 00:00:39,490 Síðan hafa stjörnufræðingar fundið mörg hundruð fjarreikistjörnur. 10 00:00:39,490 --> 00:00:44,780 Stórar og smáar, heitar og kaldar og á fjölbreyttum sporbaugum. 11 00:00:45,600 --> 00:00:49,800 Í dag erum við á mörkum þess að finna tvíburasystur jarðar. 12 00:00:50,290 --> 00:00:56,290 Og í framtíðinni: Reikistjörnu með lífi — hið heilaga gral stjörnulíffræðinga. 13 00:01:02,590 --> 00:01:06,070 Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli leikur mikilvægt hlutverk 14 00:01:06,070 --> 00:01:08,310 í leitinni að fjarreikistjörnum. 15 00:01:09,290 --> 00:01:13,560 Hópur Michel Mayors hefur fundið nokkur hundruð slíkar frá La Silla fjalli. 16 00:01:13,560 --> 00:01:16,880 Þar sem ESO náði fyrst fótfestu í Chile. 17 00:01:17,890 --> 00:01:19,880 Þetta er CORALIE litrófsritinn 18 00:01:19,880 --> 00:01:23,120 á svissneska Leonhard Euler sjónaukanum. 19 00:01:25,030 --> 00:01:30,940 Hann mælir hárfínt vagg stjarna sem hlýst af þyngdartogi reikistjarna á braut um þær. 20 00:01:30,940 --> 00:01:37,910 3,6 metra sjónauki ESO leitar líka að fjarreikistjörnum. 21 00:01:39,200 --> 00:01:42,320 HARPS litrófsritinn er sá nákvæmasti í heiminum. 22 00:01:42,320 --> 00:01:46,680 Hann hefur fundið yfir 150 reikistjörnur hingað til. 23 00:01:51,750 --> 00:01:53,360 Hans mesta uppgötvun: 24 00:01:53,360 --> 00:01:59,950 Sólkerfi að minnsta kosti fimm, allt að sjö reikistjarna. 25 00:02:11,330 --> 00:02:13,960 En það eru aðrar leiðir til að leita að fjarreikistjörnum. 26 00:02:22,130 --> 00:02:28,350 Árið 2006 hjálpaði danski 1,5 metra sjónaukinn til við uppgötvun á fjarlægri reikistjörnu 27 00:02:28,350 --> 00:02:31,350 sem er aðeins fimm sinnum massameiri en jörðin. 28 00:02:35,500 --> 00:02:39,200 Hvernig? Með örlinsuhrifum. 29 00:02:40,040 --> 00:02:45,150 Reikistjarnan og móðurstjarnan gengu fyrir bjartari stjörnu í bakgrunni 30 00:02:45,150 --> 00:02:47,320 og mögnuðu myndina af henni. 31 00:02:49,420 --> 00:02:54,660 Í sumum tilvikum er jafnvel hægt að fanga fjarreikistjörnu á mynd. 32 00:02:57,960 --> 00:03:04,240 Árið 2004 tók NACO, aðlögunarsjóntæki á Very Large Telescope 33 00:03:04,240 --> 00:03:08,220 fyrstu myndina af fjarreikistjörnu. 34 00:03:08,220 --> 00:03:14,020 Rauði bletturinn á myndinni er risareikistjarna á braut um brúnan dverg. 35 00:03:17,880 --> 00:03:22,650 Árið 2010 gekk NACO skrefi lengra. 36 00:03:24,440 --> 00:03:28,330 Þessi stjarna er í 130 ljósára fjarlægð frá jörðinni. 37 00:03:28,330 --> 00:03:35,080 Hún er yngri og bjartari en sólin og fjórar reikistjörnur ganga um hana á víðum brautum. 38 00:03:36,900 --> 00:03:41,970 Haukfrán sjón NACO gerði mönnum kleift að mæla ljósið frá reikistjörnu c 39 00:03:41,970 --> 00:03:46,490 — gasrisa sem er tíu sinnum massameiri en Júpíter. 40 00:03:48,070 --> 00:03:50,450 Þrátt fyrir glýjuna frá móðurstjörnunni 41 00:03:50,450 --> 00:03:54,450 var hægt að teygja á daufu ljósi reikistjörnunnar í litróf 42 00:03:54,450 --> 00:03:57,380 sem veitti upplýsingar um lofthjúpinn. 43 00:03:59,270 --> 00:04:05,740 Í dag fnnast margar fjarreikistjörnur þegar þær ganga þvert fyrir sínar móðurstjörnur. 44 00:04:05,740 --> 00:04:09,020 Ef við sjáum braut reikistjörnu á rönd 45 00:04:09,020 --> 00:04:12,390 gengur hún fyrir sína móðurstjörnu í hverri umferð. 46 00:04:12,390 --> 00:04:16,870 Þannig dregur hún reglulega örlítið úr birtunni frá stjörnunni 47 00:04:16,870 --> 00:04:20,310 og kemur upp um tilvist sína. 48 00:04:23,010 --> 00:04:27,600 TRAPPIST sjónaukinn á La Silla mun hjálpa til við leitina að þessum þvergöngum. 49 00:04:28,250 --> 00:04:29,570 Á sama tíma 50 00:04:29,570 --> 00:04:36,120 hefur Very Large Telescope rannsakað þvergöngu reikistjörnu í smáatriðum. 51 00:04:36,910 --> 00:04:44,820 Hér er GJ1214b, risajörð sem er 2,6 sinnum stærri en jörðin. 52 00:04:47,010 --> 00:04:53,040 Þegar hún gengur fyrir sína sól gleypir lofthjúpur hennar ljósið frá móðurstjörnunni. 53 00:04:57,200 --> 00:05:02,740 Hinn næmi FORS litrófsriti ESO hefur fundið út að GJ1214b 54 00:05:02,740 --> 00:05:07,000 gæti verið heitur og gufukenndur hnöttur. 55 00:05:09,920 --> 00:05:14,060 Gasrisar og gufubaðshnettir eru ólífvænlegir. 56 00:05:14,060 --> 00:05:17,060 En leitinni er hvergi nærri lokið. 57 00:05:18,010 --> 00:05:22,420 Fljótlega verður SPHERE mælitækinu komið fyrir á VLT. 58 00:05:22,420 --> 00:05:28,490 SPHERE mun geta greint daufar reikistjörnur í glýju móðurstjarnanna. 59 00:05:29,200 --> 00:05:35,140 Árið 2016 verður svo ESPRESSO litrófsritanum komið fyrir á VLT 60 00:05:35,140 --> 00:05:39,110 sem verður miklu betri en HARPS mælitækið. 61 00:05:41,000 --> 00:05:44,850 Og þegar Extemely Large Telescope ESO verður tilbúinn 62 00:05:44,850 --> 00:05:49,170 gæti hann fundið merki um lífhvolf á öðrum hnöttum. 63 00:05:56,480 --> 00:05:59,390 Jörðin er uppfull af lífi. 64 00:06:00,960 --> 00:06:09,640 Norður Chile hefur sinn skerf af kondórum, lamadýrum, nagdýrum og risakaktusum. 65 00:06:11,910 --> 00:06:16,830 Skrælnaður jarðvegur Atacamaeyðimerkurinnar iðar meira að segja af harðgerum örverum. 66 00:06:20,970 --> 00:06:25,300 Við höfum fundið byggingareiningar lífs í geimnum. 67 00:06:26,000 --> 00:06:28,790 Komist að því að reikistjörnur eru algengar. 68 00:06:33,110 --> 00:06:38,190 Fyrir milljörðum ára báru halastjörnur vatn og lífrænar sameindir til jarðar. 69 00:06:40,540 --> 00:06:44,250 Hví skyldi hið sama ekki gerast annars staðar í geimnum? 70 00:06:49,500 --> 00:06:51,400 Eða erum við kannski ein? 71 00:06:53,040 --> 00:06:55,080 Það er stærsta spurningin. 72 00:06:56,480 --> 00:06:59,530 Og svarið er næstum í seilingarfjarlægð.