Kúluþyrpingin NGC 6388 á mynd Hubblessjónauka NASA og ESA
Á þessari mynd Hubble geimsjónauka NASA og ESA sést NGC 6388, miðaldra kúluþyrping við Vetrarbrautina okkar. Þótt þyrpingin hafi myndast í fjarlægri fortíð (eins og allar kúluþyrpingar, er hún meira en tíu milljarða ára gömul), hefur rannsókn á dreifingu bjartra blárra stjarna innan þyrpingarinnar sýnt að hún hefur elst tiltölulega rólega og eru þyngstu stjörnur hennar að sökkva niður að miðjunni.
Ný rannsókn sem studdist við gögn frá Hubble hefur leitt í ljós að kúluþyrpingar á sama aldri geta haft mjög ólíka dreifingu blárra flækinga sem bendir til að þyrpingar eldist á mismunandi hraða.
Mynd/Myndskeið:
NASA, ESA, F. Ferraro (University of Bologna)
Um myndina
| Auðkenni: | eso1252b |
| Tungumál: | is |
| Type: | Athuganir |
| Útgáfudagur: | Des 19, 2012, 19:00 CET |
| Tengdar fréttatilkynningar: | eso1252 |
| Stærð: | 4278 x 4197 px |
Um fyrirbærið
| Nafn: | NGC 6388 |
| Type: | • Milky Way : Star : Grouping : Cluster : Globular • X - Star Clusters |
| Fjarlægð: | 35000 ljósár |
Litir og síur
| Tíðnisvið | Bylgjulengd | Sjónauki |
| Sýnilegt 435 |
Hubble Space Telescope ACS | |
| Sýnilegt V |
606 nm | Hubble Space Telescope ACS |
| Innrautt I |
814 nm | Hubble Space Telescope ACS |


















