Teikning af rykögnum í skífu umhverfis brúnan dverg
Talið er að bergreikistjörnur myndist við handahófskennda árekstra og samlímingu þess sem í fyrstu eru smásæjar agna í efnisskífu umhverfis stjörnu. Þessar agnir eru kallaðar geimryk og svipa til fíns sóts eða sands. Stjörnufræðingar sem notuðu Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA) hafa í fyrsta sinn komist að því, að í útjöðrum rykskífu í kringum brúnan dverg — fyrirbæri sem líkjast stjörnum en eru of lítil þess að skína skært eins og venjulegar stjörnur — eru rykagnir sem eru í kringum millímetri að stærð en slíkar agnir finnast jafnan í þéttari skífum umhverfis nýfæddar stjörnur. Þetta er óvænt niðurstaða sem hefur áhrifa á kenningar um myndun bergreikistjarna á stærð við jörðina og bendir til að bergreikistjörnur séu jafnvel algengari í alheiminum en menn áttu von á.
Þessi teikning sýnir þessar geimrykagnir í skífunni í kringum brúna dverginn.
Mynd/Myndskeið:
ALMA (ESO/NAOJ/NRAO)/L. Calçada (ESO)
Um myndina
| Auðkenni: | eso1248b |
| Tungumál: | is |
| Type: | Uppdráttur |
| Útgáfudagur: | Nóv 30, 2012, 12:00 CET |
| Tengdar fréttatilkynningar: | eso1248 |
| Stærð: | 4000 x 2500 px |
Um fyrirbærið
| Nafn: | ISO-Oph 102 |
| Type: | • Milky Way : Star : Type : Brown Dwarf • X - Stars |



















