1 00:00:01,280 --> 00:00:06,870 Að fanga ljósið 2 00:00:12,520 --> 00:00:14,350 Í hálfa öld 3 00:00:14,350 --> 00:00:19,500 hefur Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli sýnt okkur undur alheimsins. 4 00:00:26,250 --> 00:00:28,340 Ljósi frá stjörnunum rignir niður á jörðina. 5 00:00:30,390 --> 00:00:33,070 Risasjónaukar grípa ljóseindirnar úr geimnum 6 00:00:33,070 --> 00:00:36,940 og beina þeim í myndavélar og litrófsrita sem eru í hæsta gæðaflokki. 7 00:00:40,090 --> 00:00:44,810 Stjörnuljósmyndir nútímans eru gerólíkar þeim sem teknar voru upp úr 1960. 8 00:00:46,020 --> 00:00:49,130 Þegar ESO tók til starfa árið 1962 9 00:00:49,130 --> 00:00:53,110 notuðu stjörnufræðingar stórar ljósmyndaplötur úr gleri. 10 00:00:54,550 --> 00:00:58,730 Ekki mjög ljósnæmar, ónákvæmar og erfiðar viðfangs. 11 00:01:03,570 --> 00:01:07,220 Hvílík breyting sem varð með tilkomu rafeindabúnaðar nútímans! 12 00:01:08,020 --> 00:01:10,500 Þeir fanga næstum hverja einustu ljóseind. 13 00:01:11,020 --> 00:01:14,000 Myndirnar eru strax aðgengilegar. 14 00:01:14,000 --> 00:01:15,940 Og það sem meira er, 15 00:01:15,940 --> 00:01:19,920 þá er hægt að vinna þær og rannsaka með hugbúnaði í tölvum. 16 00:01:21,020 --> 00:01:24,690 Stjörnufræði er sannarlega orðin stafræn vísindagrein. 17 00:01:31,550 --> 00:01:33,790 Sjónaukar ESO nota sum af stærstu 18 00:01:33,790 --> 00:01:36,460 og ljósnæmustu mælitækjum heims. 19 00:01:36,460 --> 00:01:43,460 Myndavél VISTA hefur hvorki fleiri né færri en 16 ljósnema, í heild 67 milljón pixla. 20 00:01:46,040 --> 00:01:50,810 Þetta stóra mælitæki fangar innrautt ljós frá rykskýjum í geimnum, 21 00:01:50,810 --> 00:01:52,140 nýfæddum stjörnum 22 00:01:52,140 --> 00:01:55,210 og fjarlægum vetrarbrautum. 23 00:02:02,530 --> 00:02:08,200 Nemarnir eru kældir niður í mínus 269 gráður með fljótandi helíni. 24 00:02:08,200 --> 00:02:11,950 VISTA skrásetur suðurhimininn 25 00:02:11,950 --> 00:02:15,670 eins og landkönnuður sem kortleggur ókannað meginland. 26 00:02:18,480 --> 00:02:21,910 VLT Survey Telescope er önnur vél nýrra uppgötvana 27 00:02:21,910 --> 00:02:24,650 en hún sér sýnilegt ljós. 28 00:02:31,020 --> 00:02:34,670 Myndavél þessa sjónauka kallast OmegaCAM og er enn stærri. 29 00:02:34,670 --> 00:02:40,240 32 CCD myndflögur sem saman taka glæsilegar ljósmyndir 30 00:02:40,240 --> 00:02:45,100 sem eru hvorki meira né minna en 268 milljón pixlar. 31 00:02:47,870 --> 00:02:50,930 Sjónsviðið er ein fegráða 32 00:02:50,930 --> 00:02:53,980 — fjórfalt stærra en fullt tungl á himninum. 33 00:02:56,670 --> 00:03:01,220 OmegaCAM safnar fimmtíu gígabætum af gögnum á hverri nóttu. 34 00:03:02,020 --> 00:03:05,530 Og það eru bara glæsilegu gígabætin. 35 00:03:08,680 --> 00:03:11,810 Kortlagningarsjónaukar eins og VISTA og VST 36 00:03:11,810 --> 00:03:15,900 leita líka að sjaldgæfum og áhugaverðum fyrirbærum á himninum. 37 00:03:16,500 --> 00:03:19,850 Stjörnufræðingar nota síðan afl VLT 38 00:03:19,850 --> 00:03:23,490 til að rannsaka þessi fyrirbæri í smáatriðum. 39 00:03:26,290 --> 00:03:28,380 Allir VLT sjónaukarnir fjórir 40 00:03:28,380 --> 00:03:30,800 hafa sín eigin mælitæki 41 00:03:30,800 --> 00:03:33,800 og hvert hefur sína styrkleika. 42 00:03:35,000 --> 00:03:42,310 Án þessara mælitækja væri risaauga ESO á himninum, tja, blint. 43 00:03:43,349 --> 00:03:49,930 Þau bera skrautleg nöfn eins og ISAAC, FLAMES, HAWK-I og SINFONI. 44 00:03:50,880 --> 00:03:55,350 Risavaxnar hátæknivélar, hver á stærð við lítinn bíl. 45 00:03:57,020 --> 00:03:58,520 Tilgangurinn: 46 00:03:58,520 --> 00:04:03,870 Að fanga ljóseindir úr geimnum og safna öllum mögulegum upplýsingum. 47 00:04:06,020 --> 00:04:10,630 Öll þessi mælitæki eru einstök en sum eru örlítið sérstakari en önnur. 48 00:04:10,630 --> 00:04:17,370 Til dæmis nota NACO sem hér sést og SINFONI, aðlögunarsjóntæki VLT. 49 00:04:20,520 --> 00:04:23,450 Leysigeislar búa til gervistjörnur 50 00:04:23,450 --> 00:04:27,220 sem hjálpa stjörnufræðingum að leiðrétta bjögun lofthjúpsins. 51 00:04:33,850 --> 00:04:38,250 Myndir NACO eru jafn skarpar og ef þær væru teknar í geimnum. 52 00:04:41,020 --> 00:04:46,720 Og svo eru það MIDI og AMBER. Tvö víxlmælingatæki. 53 00:04:47,520 --> 00:04:52,330 Hér er ljósbylgjum frá tveimur eða fleiri sjónaukum safnað saman 54 00:04:52,330 --> 00:04:55,880 líkt og ef einn stór spegill hefði fangað þær. 55 00:04:58,520 --> 00:04:59,520 Afraksturinn: 56 00:05:00,280 --> 00:05:02,410 Skörpustu myndir sem hægt er að ímynda sér. 57 00:05:06,520 --> 00:05:09,390 En stjörnufræði snýst ekki bara um að taka myndir. 58 00:05:09,390 --> 00:05:11,080 Ef þú ert á höttunum eftir smáatriðum 59 00:05:11,080 --> 00:05:15,290 verður þú að kljúfa ljósið frá stjörnunum og rannsaka samsetningu þess. 60 00:05:18,340 --> 00:05:22,050 Litrófsgreining er eitt öflugasta tæki stjörnufræðinnar. 61 00:05:27,840 --> 00:05:31,780 Ekki skrítið að ESO búi yfir sumum af þróuðustu litrófsritum heims 62 00:05:31,780 --> 00:05:34,240 eins og hinum öfluga X-Shooter. 63 00:05:35,420 --> 00:05:40,430 Myndir eru fallegri en litrófin geyma meiri upplýsingar. 64 00:05:44,270 --> 00:05:45,520 Efnasamsetningu. 65 00:05:46,520 --> 00:05:47,780 Hreyfingar. 66 00:05:48,770 --> 00:05:50,060 Aldur. 67 00:05:56,270 --> 00:06:01,010 Lofthjúpa fjarreikistjarna á braut um fjarlægar stjörnur. 68 00:06:04,550 --> 00:06:08,890 Eða nýfæddar vetrarbrautir við endimörk hins sýnilega alheims. 69 00:06:12,350 --> 00:06:17,530 Án litrófsgreiningar værum við lítið annað en könnuðir sem stara á fallegt landslag. 70 00:06:17,530 --> 00:06:18,980 Með litrófsgreiningu 71 00:06:18,980 --> 00:06:24,570 lærum við um staðfræði, jarðfræði, sögu og samsetningu landslagsins. 72 00:06:34,260 --> 00:06:36,080 Og eitt í viðbót. 73 00:06:40,060 --> 00:06:44,930 Þrátt fyrir kyrrláta fegurð er alheimurinn ofsafenginn staður. 74 00:06:47,010 --> 00:06:48,700 Fyrirbæri taka breytingum á næturnar 75 00:06:48,700 --> 00:06:52,680 og stjörnufræðingar vilja sjá hvern einasta atburð. 76 00:06:56,020 --> 00:07:01,300 Massamiklar stjörnur enda líf sitt sem sprengistjörnur 77 00:07:07,580 --> 00:07:10,470 Sumar sprengistjörnur eru svo öflugar 78 00:07:10,470 --> 00:07:13,640 að þær skína skærar en hýsilvetrarbrautin 79 00:07:13,640 --> 00:07:19,320 og sendir flaum af ósýnilegum háorku gammageislum um geiminn. 80 00:07:21,320 --> 00:07:26,980 Litlir sjálfvirkir sjónaukar bregðast sjálfkrafa við skilaboðum frá gervitunglum. 81 00:07:26,980 --> 00:07:34,010 Á örfáum sekúndum koma þeir sér fyrir og rannsaka afleiðingar sprenginganna. 82 00:07:35,180 --> 00:07:38,680 Öðrum sjálfvirkum sjónaukum er beint að heldur rólegri atburðum, 83 00:07:38,680 --> 00:07:43,510 eins og þegar fjarlægar reikistjörnur ganga fyrir móðurstjörnur sínar. 84 00:07:46,260 --> 00:07:49,170 Alheimurinn tekur sífelldum breytingum. 85 00:07:49,170 --> 00:07:52,690 ESO reynir að missa ekki af neinu. 86 00:07:55,020 --> 00:07:58,900 Heimsfræði er rannsókn á alheiminum sem heild. 87 00:07:58,900 --> 00:08:03,110 Uppbyggingu hans, þróun og uppruna. 88 00:08:07,020 --> 00:08:11,820 Hér er nauðsynlegt að fanga eins mikið ljós og mögulegt er. 89 00:08:11,820 --> 00:08:17,880 Þessar vetrarbrautir eru svo órafjarri að örfáar ljóseindir ná til jarðar. 90 00:08:20,020 --> 00:08:23,510 En í þessum ljóseindum eru geymdar vísbendingar um alheiminn í fyrndinni. 91 00:08:25,320 --> 00:08:27,770 Þær hafa ferðast um geiminn í milljarða ára. 92 00:08:27,770 --> 00:08:31,470 Þær draga upp mynd af árdögum alheimsins. 93 00:08:32,020 --> 00:08:37,150 Þess vegna eru stórir sjónaukar og næm mælitæki svo mikilvæg. 94 00:08:37,950 --> 00:08:40,070 Síðastliðin fimmtíu ár 95 00:08:40,070 --> 00:08:44,520 hafa sjónaukar ESO komið auga á margar af fjarlægustu vetrarbrautum og dulstirnum 96 00:08:44,520 --> 00:08:46,580 sem nokkurn tímann hafa sést. 97 00:08:50,020 --> 00:08:53,980 Þeir hjálpa jafnvel til við að afhjúpa dreifingu hulduefnis 98 00:08:53,980 --> 00:08:56,970 en eðli þess er okkur enn hulin ráðgáta. 99 00:09:03,580 --> 00:09:09,790 Hver veit hvað næstu fimmtíu ár bera í skauti sér?