1 00:00:02,000 --> 00:00:04,000 Þetta er ESOcast! 2 00:00:04,000 --> 00:00:08,000 Vísindi í fremstu röð og lífið á bakvið tjöldin hjá ESO, 3 00:00:08,000 --> 00:00:10,000 Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli, 4 00:00:11,000 --> 00:00:17,000 könnun á undrum alheimsins með þáttarstjórnandanum Dr J, sem einnig er þekktur sem Dr Joe Liske. 5 00:00:20,000 --> 00:00:23,000 Komið þið sæl og verið velkomin í þennan aukaþátt ESOcast. 6 00:00:24,000 --> 00:00:27,500 Í aðdragandi 50 ára afmælis ESO í október 2012 7 00:00:27,500 --> 00:00:30,000 munum við birta átta aukaþætti 8 00:00:30,000 --> 00:00:35,000 um fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum. 9 00:00:39,000 --> 00:00:44,000 Horft til himins 10 00:00:46,000 --> 00:00:53,000 Fyrir 167.000 árum sprakk stjarna í lítilli vetrarbraut sem hringsólar um vetrarbrautina okkar. 11 00:00:56,000 --> 00:00:58,500 Á þeim tíma þegar stjarnan fjarlæga sprakk 12 00:00:58,500 --> 00:01:02,000 hafði maðurinn nýtekið sín fyrstu skref á sléttunni í Afríku. 13 00:01:05,000 --> 00:01:08,000 Enginn hefði getað tekið eftir flugeldasýningunni í geimnum 14 00:01:08,000 --> 00:01:13,000 því ljósgeislarnir voru nýlagðir af stað í langferð sína til jarðar. 15 00:01:15,000 --> 00:01:19,500 Þegar ljós sprengistjörnunnar hafði lagt að baki 98% af ferðalagi sínu 16 00:01:19,500 --> 00:01:24,500 voru grískir heimspekingar nýbyrjaðir að velta fyrir sér eðli alheimsins. 17 00:01:27,000 --> 00:01:29,000 Skömmu áður en ljósið náði til jarðar 18 00:01:29,000 --> 00:01:34,000 beindi Galíleó Galílei sínum fyrsta frumstæða sjónauka til himins. 19 00:01:38,000 --> 00:01:41,000 En þann 24. febrúar árið 1987 20 00:01:41,000 --> 00:01:45,500 þegar ljóseindum sprengingarinnar rigndi loks yfir reikistjörnuna okkar 21 00:01:45,500 --> 00:01:50,000 voru stjörnufræðingar tilbúnir að rannsaka sprengistjörnuna í smáatriðum. 22 00:01:52,000 --> 00:01:54,000 Sprengistjarnan 1987A 23 00:01:54,770 --> 00:01:56,460 blossaði upp á suðurhimninum — 24 00:01:56,460 --> 00:01:59,440 og sást því ekki frá Evrópu eða Bandarikjunum. 25 00:02:00,000 --> 00:02:04,000 Á þessum tíma hafði ESO smíðað sína fyrstu stóru sjónauka í Chile 26 00:02:04,000 --> 00:02:08,000 sem veitti stjörnufræðingum sæti í fremstu röð til að fylgjast með sjónarspilinu. 27 00:02:11,000 --> 00:02:13,500 Sjónaukinn er vitaskuld mikilvægasta tækið 28 00:02:13,500 --> 00:02:18,000 sem gerir okkur kleift að ráða fram úr leyndardómum alheimsins. 29 00:02:19,000 --> 00:02:23,000 Sjónaukar safna miklu meira ljósi en mannsaugað 30 00:02:23,000 --> 00:02:28,000 og sýna því daufari stjörnur og leyfa okkur að skyggnast dýpra út í geiminn. 31 00:02:30,000 --> 00:02:34,000 Þeir sýna líka fínni smáatriði, rétt eins og stækkunargler. 32 00:02:36,000 --> 00:02:40,000 Og er þeir eru búnir næmum myndavélum og litrófsritum 33 00:02:40,000 --> 00:02:45,000 veita þeir okkur miklar upplýsingar um reikistjörnur, stjörnur og vetrarbrautir. 34 00:02:52,000 --> 00:02:56,000 Fyrstu sjónaukar ESO á La Silla voru af ýmsum stærðum og gerðumi. 35 00:02:56,000 --> 00:02:59,000 Allt frá litlum þjóðarsjónaukum 36 00:02:59,000 --> 00:03:02,000 upp í stórar ljósmyndavélar og gleiðlinsur. 37 00:03:12,000 --> 00:03:16,000 2,2 metra sjónaukinn, sem nú er næstum 30 ára gamall, 38 00:03:17,000 --> 00:03:20,000 tekur enn glæsilegar myndir af alheiminum. 39 00:04:01,000 --> 00:04:03,000 Á hæsta tindi La Silla fjalls 40 00:04:03,000 --> 00:04:09,000 er að finna mesta afrek fyrstu starfsára ESO — 3,6 metra sjónaukann. 41 00:04:09,000 --> 00:04:14,000 Hann er 35 ára gamall en hefur öðlaðst nýtt líf í leit að fjarreikistjörnum. 42 00:04:16,000 --> 00:04:20,500 Sænskir stjörnufræðingar byggðu sömuleiðis 15 metra breitt loftnet 43 00:04:20,500 --> 00:04:25,000 til að rannsaka örbylgjur frá köldum geimskýjum. 44 00:04:26,000 --> 00:04:31,000 Saman hafa þessir sjónaukar hjálpað til við að afhjúpa alheiminn sem við búum í. 45 00:04:45,000 --> 00:04:49,000 Jörðin er aðeins ein af átta reikistjörnum í sólkerfinu. 46 00:04:55,000 --> 00:04:57,000 Frá hinum örsmáa Merkúríusi til risans Júpíters 47 00:04:57,000 --> 00:05:03,500 eru þessir berg- og gashnettir leifar frá myndun sólarinnar. 48 00:05:09,000 --> 00:05:14,000 Sólin er að sama skapi meðalstjarna í Vetrarbrautinni. 49 00:05:15,000 --> 00:05:20,000 Ein lítil ljóstýra innan um hundruð milljarða sambærilegra stjarna 50 00:05:20,000 --> 00:05:25,000 en líka útþanda rauða risa, samþjappaða hvíta dverga 51 00:05:25,000 --> 00:05:28,000 og nifteindastjörnur sem snúast geysihratt. 52 00:05:29,000 --> 00:05:34,000 Þyrilarmar Vetrarbrautarinnar eru stráðir glóandi geimþokum 53 00:05:34,000 --> 00:05:37,000 sem geta af sér bjartar þyrpingar nýfæddra stjarna 54 00:05:37,000 --> 00:05:42,000 á meðan svermur aldraðra kúluþyrpinga umlykur vetrarbrautina okkar. 55 00:05:47,000 --> 00:05:51,500 Og vetrarbrautin okkar er aðeins ein af óteljandi vetrarbrautum í hinum stóra alheimi 56 00:05:51,500 --> 00:05:57,000 sem hefur þanist út frá Miklahvelli í næstum fjórtán milljarða ára. 57 00:06:05,000 --> 00:06:10,000 Síðustu fimmtíu ár hefur ESO hjálpað til við að afhjúpa stöðu okkar í alheiminum. 58 00:06:10,000 --> 00:06:14,000 Og með því að horfa til himins höfum við líka áttað okkur á eigin uppruna. 59 00:06:14,500 --> 00:06:20,500 Við erum hluti af stórri alheimssögu. Án stjarna, værum við ekki hér. 60 00:06:24,000 --> 00:06:28,000 Í upphafi innihélt alheimurinn aðeins vetni og helíum, tvö léttustu frumefnin. 61 00:06:29,000 --> 00:06:34,000 En stjörnurnar eru kjarnaofnar sem umbreyta léttu frumefnunum í þyngri. 62 00:06:36,000 --> 00:06:40,000 Og sprengistjarna eins og 1987A 63 00:06:40,000 --> 00:06:44,000 sáir afurðum sínum um alheiminn. 64 00:06:47,000 --> 00:06:51,000 Þegar sólkerfið myndaðist fyrir um 4,6 milljörðum ára 65 00:06:51,000 --> 00:06:55,000 innihélt það þessi þungu frumefni í litlu magni. 66 00:06:55,000 --> 00:07:00,000 Málma og silíköt en líka kolefni og súrefni. 67 00:07:01,000 --> 00:07:06,000 Kolefnið í vöðvunum, járnið í blóðinu og kalsíumið í beinum okkar, 68 00:07:06,000 --> 00:07:09,000 urðu til í fyrri kynslóðum stjarna. 69 00:07:09,000 --> 00:07:13,000 Við erum bókstaflega himnesk. 70 00:07:14,000 --> 00:07:17,000 En ný svör leiða alltaf til nýrra spurninga. 71 00:07:17,000 --> 00:07:21,000 Því meira sem við lærum, því dýpri verða leyndardómarnir. 72 00:07:23,000 --> 00:07:27,000 Hver eru uppruni og örlög vetrarbrauta? 73 00:07:31,000 --> 00:07:36,000 Eru önnur sólkerfi þarna út og gæti líf þrifist á öðrum hnöttum? 74 00:07:43,000 --> 00:07:49,000 Hvað leynist djúpt í iðrum Vetrarbrautarinnar? 75 00:08:00,000 --> 00:08:04,000 Stjörnufræðingar þurftu augljóslega miklu öflugri sjónauka. 76 00:08:04,000 --> 00:08:07,000 Og ESO veitti þeim ný og byltingarkennd tæki. 77 00:08:16,000 --> 00:08:20,000 Þetta er Dr J. sem kveður fyrir hönd ESOcast. 78 00:08:20,000 --> 00:08:23,000 Fylgstu með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti. 79 00:08:26,000 --> 00:08:28,000 ESOcast er framleitt af ESO, 80 00:08:28,000 --> 00:08:30,000 Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli. 81 00:08:30,000 --> 00:08:31,000 ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli, 82 00:08:31,000 --> 00:08:33,000 eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims 83 00:08:33,000 --> 00:08:35,000 sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnustöðvar veraldar. 84 00:08:39,000 --> 00:08:45,000 Handrit ESO; þýðing Sævar Helgi Bragason 85 00:08:57,000 --> 00:09:00,000 Nú þegar þú hefur séð það nýjasta frá ESO 86 00:09:02,000 --> 00:09:06,000 skaltu hverfa út í geiminn með Hubble. 87 00:09:08,000 --> 00:09:10,000 Í Hubblecast er fjallað um nýjustu uppgötvanir 88 00:09:10,000 --> 00:09:14,000 frægasta geimsjónauka í heiminum, 89 00:09:17,000 --> 00:09:20,000 Hubble geimsjónauka NASA og ESA.