1 00:00:03,000 --> 00:00:07,000 Ein öflugasta ofurtölva heims 2 00:00:07,000 --> 00:00:11,000 hefur verið sett upp og prófuð 3 00:00:11,000 --> 00:00:14,000 á afskekktum stað, hátt yfir sjávarmáli 4 00:00:14,000 --> 00:00:16,000 í Andesfjöllunum í norðurhluta Chile. 5 00:00:17,000 --> 00:00:21,000 Uppsetningin er mikilvægur áfangi í átt til þes 6 00:00:21,000 --> 00:00:23,000 að ljúka smíði ALMA, 7 00:00:23,000 --> 00:00:28,000 Atacama Large Millimeter/submillimeter Array. 8 00:00:29,000 --> 00:00:32,000 ALMA ofurtölvan breytir loftnetum 9 00:00:32,000 --> 00:00:37,000 ALMA í einn risasjónauka. 10 00:00:42,000 --> 00:00:44,000 Þetta er ESOcast! 11 00:00:44,000 --> 00:00:48,000 Vísindi í fremstu röð og lífið á bak við tjöldin 12 00:00:48,000 --> 00:00:52,000 hjá ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli. 13 00:01:01,000 --> 00:01:06,000 ALMA er ein flóknasta stjörnustöð heims frá upphafi 14 00:01:06,000 --> 00:01:11,000 og samanstendur af röð 66 loftneta. 15 00:01:12,000 --> 00:01:15,000 Ofurtölva sjónaukans, eða fylgnisían, 16 00:01:15,000 --> 00:01:18,000 er mjög mikilvægur hluti hans. 17 00:01:19,000 --> 00:01:22,000 Til að ALMA virki, verður að sameina 18 00:01:22,000 --> 00:01:26,000 merkin sem hvert loftnet nemur utan úr geimnum 19 00:01:26,000 --> 00:01:28,000 við merki allra hinna loftnetanna. 20 00:01:30,000 --> 00:01:34,000 Ofurtölvan sameinar að lokum og ber stöðugt saman 21 00:01:34,000 --> 00:01:38,000 gögn frá allt að 64 af loftnetum ALMA raðarinnar, 22 00:01:38,000 --> 00:01:42,000 sem allt að 16 kílómetra skilja í sundur, 23 00:01:42,000 --> 00:01:46,000 og gerir loftnetunum kleift að vinna saman 24 00:01:46,000 --> 00:01:49,000 sem einn risavaxinn sjónauki. 25 00:01:50,000 --> 00:01:53,000 ALMA ofurtölvan hefur meira en 26 00:01:53,000 --> 00:01:59,000 134 milljónir örgjörva og gerir, þótt ótrúlegt megi virðar, 27 00:01:59,000 --> 00:02:03,000 17 billjarða útreikninga á sekúndu. 28 00:02:03,000 --> 00:02:08,000 Það er 17 þúsund milljón milljón! 29 00:02:10,000 --> 00:02:14,000 Tölvan var smíðuð sérstaklega til þessa verks 30 00:02:14,000 --> 00:02:18,000 en fjöldi útreikninga á sekúndu er sambærilegur við 31 00:02:18,000 --> 00:02:21,000 getu hröðustu almennu 32 00:02:21,000 --> 00:02:24,000 ofurtölva í heiminum. 33 00:02:25,000 --> 00:02:29,000 Þessi einstaka reiknigeta krafðist frumlegrar hönnunar, 34 00:02:29,000 --> 00:02:33,000 bæði fyrir staka hluta og heildaruppbyggingu 35 00:02:33,000 --> 00:02:36,000 ofurtölvunnar. 36 00:02:38,000 --> 00:02:41,000 Upphafleg hönnun tölvunnar, 37 00:02:41,000 --> 00:02:44,000 sem og smíði hennar og uppsetning, 38 00:02:44,000 --> 00:02:48,000 var í höndun National Radio Astronomy Observatory í Bandaríkjunum, 39 00:02:48,000 --> 00:02:52,000 norður-ameríska þátttakandans í ALMA. 40 00:02:53,000 --> 00:02:57,000 National Science Foundation í Bandaríkjunum fjármagnaði ofurtölvuna 41 00:02:57,000 --> 00:03:01,000 auk þess sem ESO lagði sín lóð á vogarskálarnar. 42 00:03:01,000 --> 00:03:05,000 ESO, sem evrópski þátttakandinn í ALMA, 43 00:03:05,000 --> 00:03:08,000 lagði einnig til lykilhluti í tölvuna: 44 00:03:08,000 --> 00:03:13,000 Glænýtt og fjölhæft stafrænt síukerfi, 45 00:03:13,000 --> 00:03:15,000 sem fundið var upp og búið til í Evrópu, 46 00:03:15,000 --> 00:03:20,000 var sett inn í upphaflegu hönnun NRAO. 47 00:03:22,000 --> 00:03:26,000 Bordeauxháskóli hannaði og smíðaði kerfi 48 00:03:26,000 --> 00:03:32,000 550 fyrsta flokks stafrænna rafrásarsía fyrir ESO. 49 00:03:32,000 --> 00:03:36,000 Með þessum síum er hægt að kljúfa ljósið 50 00:03:36,000 --> 00:03:39,000 sem ALMA sér í 32 sinnum fleiri tíðnisvið 51 00:03:39,000 --> 00:03:42,000 en í upprunalegu hönnuninni, 52 00:03:42,000 --> 00:03:48,000 sem gerir stjörnufræðingum kleift að grannskoða litróf ljóssins. 53 00:03:50,000 --> 00:03:55,000 Fyrir utan tæknilegar áskoranir við smíði tölvunnar 54 00:03:55,000 --> 00:04:00,000 var harðneskjuleg staðsetning kerfisins önnur hindrun. 55 00:04:01,000 --> 00:04:03,000 Ofurtölvan er hýst í tæknibyggingu 56 00:04:03,000 --> 00:04:06,000 stjórnstöðvar ALMA, 57 00:04:06,000 --> 00:04:10,000 hálægustu hátæknibyggingu heims. 58 00:04:11,000 --> 00:04:16,000 Í 5.000 metra hæð er loftið þunnt sem þýðir 59 00:04:16,000 --> 00:04:21,000 að tvöfalt meira loftflæði en venjulega þarf til að kæla ofurtölvuna. 60 00:04:23,000 --> 00:04:28,000 Þunna loftið útilokar líka notkun diskadrifa sem snúast, 61 00:04:28,000 --> 00:04:31,000 því höfuð skrifarans og lesarans krefst 62 00:04:31,000 --> 00:04:36,000 loftpúða til að koma í veg fyrir að þeir rekist á plöturnar. 63 00:04:36,000 --> 00:04:40,000 Það sem meira er þarf ofurtölvan að standast jarðskjálfta 64 00:04:40,000 --> 00:04:44,000 sem eru algengir á þessu svæði. 65 00:04:46,000 --> 00:04:49,000 ALMA hóf rannsóknir árið 2011 66 00:04:49,000 --> 00:04:52,000 með hluta loftnetanna. 67 00:04:53,000 --> 00:04:56,000 Hluti ofurtölvunnar var þá þegar í notkun 68 00:04:56,000 --> 00:04:59,000 og sameinaði merkin frá þessum loftnetum 69 00:04:59,000 --> 00:05:02,000 en kerfið er nú tilbúið 70 00:05:02,000 --> 00:05:08,000 til þess að ALMA hefji rannsóknir með fleiri loftnetum. 71 00:05:12,000 --> 00:05:15,000 Velheppnuð uppsetning nýju ofurtölvunnar 72 00:05:15,000 --> 00:05:21,000 er mikilvægt skref í átt til þess að ljúka smíði ALMA í nátinni framtíð. 73 00:05:23,000 --> 00:05:27,000 Með óviðjafnanlegri greinigetu raðarinnar 74 00:05:27,000 --> 00:05:34,000 munu stjörnufræðingar öðlast nýja innsýn í hulin undur alheimsins. 75 00:05:41,000 --> 00:05:45,000 ESOcast er framleitt af ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli www.eso.org 76 00:05:45,000 --> 00:05:49,000 ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli, eru fremstu fjölþjóðlegu vísinda- og tæknisamtök í stjörnufræði 77 00:05:49,000 --> 00:05:52,000 sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnusjónauka heims. 78 00:05:55,000 --> 00:05:59,000 Handrit ESO; þýðing: Sævar Helgi Bragason